Áfram

Ruddasláttuvél

by Knýr
Upprunalegt verð 414.900 kr - Upprunalegt verð 897.000 kr
Upprunalegt verð
588.900 kr
414.900 kr - 897.000 kr
Núverandi verð 588.900 kr
Með VSK

Ruddasláttuvél er stórkostlega öflugt tæki hvort sem um er að ræða órækt, torfær eða grýtt svæði, eða venjuleg tún. Sina, Kerfill, Vegkantar, Lúpína eru einungis nokkur dæmi um aðstæður sem ruddasláttuvélin skarar framúr við. Kostir þess að draga sláttuvél á eftir fjórhjóli eða torfærutæki eru einnig miklir umfram önnur minni tæki. Ferðatími, vinnuhraði og aðgengi að áður torsóttum stöðum gerbreytist. Ruddasláttuvélin er fáanleg með mismundandi mótorum:

  • 14 hp Briggs & Stratton (2100 series) vél
  • 14 hp Briggs & Stratton (2100 series) vél m/ rafstarti
  • 18 hp Briggs & Stratton V2 Vanguard vél m/ rafstarti (fær okkar meðmæli)

Ef miðað er við 18hp Briggs & Stratton V2 Vanguard mótor er vélin 330kg, eyðir 4 lítrum af bensíni á klukkustund (miðað við fullt afl). Stilla má hve nærri hún slær og skipta má um hnífa ("T-cutters" í stað "Y-cutters") ef vinna á fínlegri svæði svo sem íþróttavelli eða tjaldstæði. Aukahnífar eru að jafnaði til á lager eða fáanlegir með hraðsendingu. Í vélinni eru 28 pör af hnífum (alls 56 blöð) sem raðast á láréttann öxul. Vinnubreidd er 115cm og vinnusvæði er allt að 10km/klst. Miðflóttaaflskúpling tengir saman mótor og reimakerfi og sér um að kúpla frá ef átak verður of mikið.

Rafstartið virkar þannig að kapplar fylgja með vélinni sem hægt er að tengja á rafgeymi fjórhjólsins og nýta hann til að ræsa vélina. Einnig er hægt að ræsa vélina með handafli.