Áfram

Enelion Wallbox Duo Power 2x 7.4-22 KW hleðslustöð - sérpöntun

by Knýr
Upprunalegt verð 359.000 kr - Upprunalegt verð 359.000 kr
Upprunalegt verð
359.000 kr
359.000 kr - 359.000 kr
Núverandi verð 359.000 kr
Með VSK

Tvöföld hleðslustöð þar sem hægt er að hlaða tvo bíla í einu á allt að 22 kw. Stöðin er búin tveimur OLED upplýsingaskjám sem veita upplýsingar um hleðsluhraða og hleðslutíma. 

Stöðin þolir íslenskt veðurfar og er uppgefin af framleiðanda fyrir allt niður í - 25 gráðu frost. Stöðin er með innbyggðan DC varnarbúnað af gerð B (RCMB).

- Nánari upplýsingar:

  • Tvö tengi af gerð 2
  • Nettengjanleg bæði með Wi-Fi og LTE (GSM)
  • Litir: Silfur eða svört
  • Efnisgerð: Ál
  • Lekastraumvörn af gerð B (RCMB)
  • Innbyggð álagsstýring (DLB)
  • Straumur: Bæði tengjanleg fyrir 16A og 32A 
  • Ryk og vatnsheldnistaðall:  IP 54
  • Höggvarnarstaðall: IP 10
  • Hægt er að læsa snúrunni í stöðinni
  • CE vottað.
  • Fáanleg með MID vottuðum mæli
  • Framleiðsluland: Polland

- Helstu mál:

  • Hæð: 250 mm.
  • Breidd: 530 mm.
  • Dýpt: 150 mm.
- Endurgreiðsla á VSK

Til þess að hvetja til orkuskipta hafa stjórnvöld ákveðið að heimila endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna kaupa á hleðslustöðvum. Ennfremur fellur uppsetning þeirra undir „Allir Vinna“ átakið og má því einnig sækja um endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu við uppsetningu.

- Uppsetning

Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af uppsetningunni

Við höfum á okkar snærum fagmenn með reynslu og þekkingu á uppsetningu heimahleðslustöðva. Hægt er að ganga frá kaupum á uppsetningu hér á síðunni. Að því loknu verður haft samband við þig innan 2 virkra daga og stöðin komin upp svo fljótt sem unnt er. Eftir eðli og umfangi verkefnisins getur einhver auka kostnaður fallið til við verkið. Rafverktakinn mun gera grein fyrir því fyrirfram svo ekkert komi á óvart.

Ekki hika við að hafa samband við okkur ef einhverjar spurningar vakna.