Áfram

LithiumSafe™ Battery Bag PDS

by Knýr
Upprunalegt verð 53.000 kr - Upprunalegt verð 69.000 kr
Upprunalegt verð
69.000 kr
53.000 kr - 69.000 kr
Núverandi verð 69.000 kr
Með VSK

Lithium Safe vörur eru ekki til á lager. Vinsamlegast hafið samband í síma 511 1116 eða sendið tölvpóst á hledslan@hledslan.is til að panta. 

Lýsing

LithiumSafe™ Battery Bag HP er eldtefjandi öryggispoki ætlaður fyrir farsíma, fartölvur, spjaldtölvur og annað sem knúið er lithium rafhlöðu. Þegar skammhlaup verður í lithium rafhlöðu getur hún ofhitnað, brunnið eða jafnvel sprungið. Hin einstaka hönnum pokanna samanstendur af hitaþolnu einangrunalagi og sterkum eldtefjandi efnum sem veita góða vörn þegar illa fer.

Notkun

Ýmsar ástæður geta verið fyrir því að rafhlaða komist í hættulegt ástand, svo sem utanaðkomandi hiti, of mikil eða lítil hleðsla, hröð afhleðsla, hleðsla á of háum straumi, skemmd í burðarvirki, hnask eða skammhlaup, svo eitthvað sé nefnt. Til að byrja með hitnar rafhlaðam, þar næst byrjar hún að gefa frá sér reyk. Um leið og grunur vaknar um að ekki sé allt með felldu skal setja á sig þar til gerða öryggishanska, og án tafar setja tækið, ásamt rafhlöðunni í rafhlöðupokann og loka. 

Pokarnir hafa verið prófaðir af óháðum rannsóknarstofum og eru meðal annars vottaðir til notkunar í flugvélum af Evrópsku Flugöryggisstofnuninni (EASA CS 25.853). Skýrteini þess efnis fylgja pokum, sé þess óskað.

  • Líftími (serviceable life) eru 15 ár.
  • Lithium Safe vörur koma með raðnúmeri sem rekjanlegt er í gegnum gæðakerfi framleiðanda.

Stærðir

Hannað til að flestar gerðir fartölva passi auðveldlega í pokann:  47 x 44 cm Venjuleg fartölva er: 30 x 25 cm 

*Hægt er að láta framleiða poka í öðrum stærðum í samráði við framleiðanda.

Litur

Pokarnir eru gráir að lit, nema um annað sé beðið

Lokun 

2 "hook-and-loop-tape fasteners; 500 mm breiðir, saumaðir í gegnum öll lög pokans til að styrkja hann. Garn er háhitaþolið með stálkjarna (AISI 316 L) og utanum hann er vafið Kevlarþræði. Stálið er stöðugt allt að 1100 °C án átaks en 650°C sé átak til staðar.

Nánar

Innra lag:

  • Háhitaþolið efni.
  • Efni stöðugt allt að 1000 °C
  • Eldfimt: Non-flammable A1 skv. DIN 410 2

Fillling:

  • Filling Meðfærilegt, örtrefja, eldtefjandi efni.
  • Bráðnun: 1200 °C
  • Hitaleiðni.: 0,25 W/mK @ 1000 °C
  • Eldfimt: Non-flammable A1 skv. DIN 410 2

Ytra Byrði:

  • E-Glass efni, sílikonhúðað til vatnsvarnar.
  • Þykkt: 0,5 mm
  • Húðun: 80 gr/m2
  • Hitaþol: 400 °C til langs tíma en 500 °C til skamms tíma
  • Eldfimt: Non-flammable acc. to DIN 66803 and DIN 4102 B2 
  • Framleiðsluland: Holland. 

Fyrirvari

Uppgefin gildi sýna algengar niðurstöður. Þau eru fengin í samræmi við viðurkenndar prófunaraðferðir og aðstæður. Eðlilegt getur verið að þau reynist breytileg milli framleiðslulota. Að gefa upp þessi gildi er hluti af tæknilegri þjónustu og geta þau breyst án fyrirvara. Ekki skal reiða sig á þessi gildi. Íslenskur texti er þýddur. Ekki er tekin ábyrgð á villum í þýðingu.