
Ruddasláttuvél
Ruddasláttuvél er stórkostlega öflugt tæki hvort sem um er að ræða órækt, torfær eða grýtt svæði, eða venjuleg tún. Sina, Kerfill, Vegkantar, Lúpína eru einungis nokkur dæmi um aðstæður sem ruddasláttuvélin skarar framúr við. Kostir þess að draga sláttuvél á eftir fjórhjóli eða torfærutæki eru einnig miklir umfram önnur minni tæki. Ferðatími, vinnuhraði og aðgengi að áður torsóttum stöðum gerbreytist. Ruddasláttuvélin er fáanleg með mismundandi mótorum:
- 14 hp Briggs & Stratton (2100 series) vél
- 14 hp Briggs & Stratton (2100 series) vél m/ rafstarti
- 18 hp Briggs & Stratton V2 Vanguard vél (fær okkar meðmæli)
- 18 hp Briggs & Stratton V2 Vanguard vél m/ rafstarti
Ef miðað er við 18hp Briggs & Stratton V2 Vanguard mótor er vélin 330kg, eyðir 4 lítrum af bensíni á klukkustund (miðað við fullt afl). Stilla má hve nærri hún slær og skipta má um hnífa ("T-cutters" í stað "Y-cutters") ef vinna á fínlegri svæði svo sem íþróttavelli eða tjaldstæði. Aukahnífar eru að jafnaði til á lager eða fáanlegir með hraðsendingu. Í vélinni eru 28 pör af hnífum (alls 56 blöð) sem raðast á láréttann öxul. Vinnubreidd er 115cm og vinnusvæði er allt að 10km/klst. Miðflóttaaflskúpling tengir saman mótor og reimakerfi og sér um að kúpla frá ef átak verður of mikið.